..hvar á að byrja?
byrjum á byrjuninni. ég er búin að fá einkunn úr öðrum áfanganum mínum og fékk 10. tveir þumlar upp fyrir því. ég bíð enn eftir að fá út úr seinni áfanganum þar sem kennarinn er ekkert að stressa sig á því að skila neinu frá sér.
til að fagna lokum prófa (ég allavega) fórum við í road-trip til los angeles og las vegas. ferðalagið byrjaði á því að sækja óttarr, bróður snævars, á flugvöllinn í san diego og sýna honum miðbæinn. ég græddi alveg hrikalega mikið á þeirri ferð þar sem ég fékk afmælisgjöfina mína frá snævari fyrirfram. ég gerði nefnilega þau mistök fyrir nokkru síðan að máta buxur sem kostuðu allt of mikið fyrir budget-ið mitt og gat svo ekki hætt að hugsa um þær. eftir að hafa dreymt þær tvisvar sinnum ákváðum við að þær myndu vera afmælisgjöfin mín frá dúlla mcdúllson og ég er meira að segja í þeim akkúrat núna. við eyddum deginum og nóttinni í san diego þar sem óttarr fékk að gista á nýja, fína svefnsófanum okkar. daginn eftir héldum við svo til borg englanna.
við komum til la um fjögur leytið og fórum beint á lax til að sækja hemma og siggu. við biðum ótrúlega þolinmóð á flugvellinum eftir þeim og biðin var sko vel þess virði. þegar ég sá þessi yndislegu andlit labba í áttina til mín varð ég svo glöð því ég hafði ekki séð þau frá því í febrúar. við keyrðum svo í fínu íbúðina sem við vorum búin að leigja þar sem við skiptum um föt og drifum okkur út að borða. hvernig allar þessar elskur héldu sér vakandi er mér óskiljanlegt þar sem allir gestirnir voru nýkomnir til landsins með svaðalegan tímamismun og flugþreytu. en hetjurnar sem þau eru létu það ekkert á sig fá og á fyrsta kvöldi lögðum við í svakalega steik og smá tjútt. við byrjuðum á þessum fína steikarstað á hollywood blvd og tókum náttúrulega smá rölt yfir stjörnurnar. já, ég sagði yfir stjörnurnar sem að þekja gangstéttir hb. við hittum á ingvar, frænda bræðranna, og kíktum með honum og nokkrum félögum hans á hotel roosevelt og chateau marmont en á báðum stöðum var afar dræm stemning þannig að við ákváðum að leggja af stað heim. þar sem við vorum að keyra heim, keyrum við fram hjá svaðalegum fjölda af samkynhneigðum mönnum, vona að enginn móðgist við þetta þar sem það fór ekki fram hjá einum né neinum að þetta voru samkynhneigðir karlmenn, en þá eru nokkrir gay clubs í götunni og svaðaleg stemning í gangi inn á einum þannig að við sáum okkur ekki annað fært en að kíkja inn. þarna fundum við loksins partý og gátum hrist aðeins á okkur bossana. það voru meira að segja plaköt og auglýsingar sem tilkynntu að þessi klúbbur hefði verið kosinn best gay club af áhorfendum mtv ekki slæmt það. hann var líka sjúklega flott skreyttur í halloween þema sem að jók bara á stemmarann.
daginn eftir vöknuðu allir eldsnemma hressir og kátir, nema við snævar auðvitað þar sem við þurfum meiri svefn en annað fólk, og við ákváðum að fara í göngutúr á venice beach. þar var ótrúlega skemmtilegt að labba fram og til baka og hemmi náði að taka endalaust magn af myndum. við kíktum svo til sólveigar í kaffi og göngutúr um canal-ana í venice sem eru ekkert smá flottir. við gengum fram hjá alls konar húsum, gömlum, nýjum, krúttlegum, steyptum og tréhúsum en það sem vakti mesta athygli voru tvö hús sem stóðu hlið við hlið og voru þvílíkt skreytt fyrir halloween. það er víst svaka show þarna á kvöldin en mallarnir okkar kölluðu á fóður þannig að við kíktum út að borða á mexíkanskan stað með sólveigu og fengum okkur í svanginn. ég smakkaði guacamole í fyrsta skipti, þar sem sólveig vildi ekki hlusta á nei takk-ið mitt, og það var bara mjög gott. ég hef nefnilega smakkað avacado og var ekki hrifin þannig að ég sá ekki fram á annað en að ég myndi ekki fíla guacamole þar sem uppistaðan í því er jú avacado. ég hafði rangt fyrir mér og ég borðaði nachos með guacamole með bestu list þar til maturinn minn kom og svo aðeins meira eftir það. til að drepa tímann tókum við rölt í santa monica þar sem að óttarr náði að bæta aðeins í ferðatöskuna og snævar gat ekki látið sitt eftir liggja og fór heim einu buxnapari og einu skópari ríkari. við kíktum svo með sólveigu á roof-top staðinn sem við fórum með henni og dhani á í fyrsta skipti sem við komum til la og hittum þar dhani og tvo vini hans. þegar staðurinn lokaði þá kíktum við heim til solu og dhani í spjall og smá skrall. liðið náði að verða nokkuð "hresst" en ég náði að rúlla öllum út í bíl að lokum.
aftur vaknaði heimilisfólkið fyrir allar aldir, nema snævar í þetta skiptið, en við hin fórum á ihop í sveittan morgunmat. það kom skemmtilega á óvart í þessari ferð að hemmi getur borðað á við þá feitustu ef hann fær bara smá tíma. ég, hemmi og sigga skutluðum bræðrunum svo í universal studios og héldum í túristaferð út um alla la. við fórum í gegnum hvert atriði á listanum hennar siggu og náðum á afar stuttum tíma að labba rodeo drive (tvö celeb sightings þar), fá okkur ískexsamlokur, taka myndir af hollywood skiltinu, heimsækja marilyn monroe í eftirlífinu og festast í umferð. við fórum svo heim í smá rólegheit áður en við lögðum af stað út aftur í mat á the standard. veitingastaðurinn þar er með diner fíling sem var ótrúlega skemmtilegur og með mjög góðan mat ef ég man rétt. við kíktum svo í hustler búðina og fengum beint í æð hugh hefner fíling í gamla kallinum sem var í innkaupaleiðangri með tveimur ungum frúum sem báru undir hann barely there mínípils og geirvörtulímmiða. ótrúlega skemmtilegt alveg hreint.
síðasta daginn í la kvöddum við hemma og siggu með söknuði þar sem þau héldu för sinni til íslands áfram með smá stoppi í boston þar sem sigga sýndi sínar bestu hliðar í pvc nunnubúning 
þetta er gott í bili þannig að vegas hlutinn verður settur inn von bráðar.
þar til næst..